Rannsóknir og þróun

Grundvallarstefna Fujifilm samsteypunnar í rannsóknum og þróun

Fujifilmsamsteypan stundar rannsókna- og þróunarvinnu sem byggir á þeim grundvallarforsendum sem fyrir liggja til þess að efla vöxt sinn á helstu starfssviðum sínum og til að skapa ný viðskiptatækifæri.

 

Samþætting viðskipta-, rannsókna- og þróunarstefnu.

  1. Opnun nýrra öflugra viðskiptatækifæra sem bæta lífsgæði
  2. Stöðugur vöxtur núverandi viðskipta með nýsköpun

 

Rannsóknastefna

  1. Lóðrétt og lárétt stækkun grundvallartækni Fujifilm samsteypunnar
  2. Sköpun nýrra gilda með samþættingu margvíslegrar tækni á mörgum sviðum
  3. Bætt samlegðaráhrif innan samsteypunnar
  4. Hraðari þróun
  5. Bætt afkastageta í grundvallarrannsóknum og þróun hjá öllum rannsóknarstarfsmönnum og deildum

Tæknisvið og aðalstarfsvettvangur Fujifilm samsteypunnar

Fujifilm samsteypan býr yfir einstaklega fjölþættri tækni, sem nær bæði til lífrænna sem ólífrænna efna, greininga, þunnfilmugerðar og -vinnslu, mynda og hugbúnaðar, sjónglerja og rafeindavélfræði sem þróuð var á sviðum eins og til dæmis ljósnæmum efnum og Xerografíu. Því til viðbótar búum við yfir mikilvægri tækni sem gerir það kleift að ná framúrskarandi afköstum og kostnaðarlækkun. Fujifilm rekur í dag fyrirtæki á mörgum mismunandi sviðum. Fujifilm beitir vöruþróunartækni sem tengir saman þessi mikilvægu grundvallartæknisvið, í þeim tilgangi að efla rannsókna- og þróunarstarf á helstu starfssviðum sínum og opna um leið viðskiptatækifæri framtíðarinnar.

Frekari upplýsingar varðandi grundvallartækni Fujifilm er að finna á heimasíðu Fujifilm Holdings Corporation.

Grundvallar- og megintækni

Frekari upplýsingar varðandi rannsóknar- og þróunarstarfsemi Fujifilm er að finna á vefsíðu Fujifilm Global Website.